Beint í efni
Ásta Björk Sigþórsdóttir, stofnandi Studio Bloom, situr í hægindastól við háa blómaskreytingu

Um okkur

Á bak við Studio Bloom er Ásta

Ásta hannar hverja skreytingu með rýmið, stemninguna og árstíðina í huga. Frá fyrstu hugmynd til uppsetningar sér hún sjálf um hvert smáatriði.

Hver er á bak við Studio Bloom

Studio Bloom var stofnað árið 2025 út frá ástríðu fyrir fallegu umhverfi og stemningu og skorti á ákveðnum vá-faktor í rýmum eins og biðstofum, móttökum eða veitingastöðum.

Ég er fædd og uppalin í Lúxemborg og bjó þar í 35 ár, þar sem ég kynntist ólíkum stílum, menningu og fagurfræði sem hafa mótað smekk minn. Síðar lærði ég innanhúshönnun í London og hef fengið að upplifa fjölbreytt umhverfi og rými úr ólíkum áttum.

Með Studio Bloom sameina ég þessa reynslu og ástríðu til að bjóða upp á lausn sem gerir fólki kleift að hafa fallegt rými allt árið, án fyrirhafnar. Ég trúi því að blóm og skreytingar geti breytt ekki bara útliti heldur einnig tilfinningu og upplifun hvers rýmis.

Ásta Björk Sigþórsdóttir, stofnandi og eigandi Studio Bloom

Ásta stillir upp blómaskreytingu á sviði fyrir FKA-viðburðÁsta stillir upp stórum pottaplöntum í vinnustofunni

Á bak við skreytingarnar

Hver skreyting er hönnuð frá grunni

Hún kemur sjálf að hverju verki, hvort sem það er lítil borðskreyting eða uppsetning fyrir stóran viðburð.

Ásta heldur á stórum vendi af hvítum og rjómalitum rósum

Frí heimsókn

Við komum og skoðum rýmið

Heimsóknin tekur um hálftíma og er án skuldbindingar. Þú færð tillögu hvort sem þú heldur áfram eða ekki.