Beint í efni
Móttaka með stórri silkiblómaskreytingu í hvítum vasa á afgreiðsluborði

Af hverju áskrift

Fyrstu kynni verða til áður en nokkur segir orð.

Fallegt rými skapar góð fyrstu kynni. Með silkiblómum í áskrift helst það hlýlegt og aðlaðandi allan ársins hring án þess að starfsfólkið þurfi að sinna því.

Þú finnur okkur hjá

Sami stallur, tvær árstíðir

Viðskiptavinirnir finna strax að eitthvað er nýtt.

Þegar skreytingin hefur breyst frá síðustu heimsókn tekur fólk ósjálfrátt eftir því. Breytingin gefur til kynna að rýminu sé sinnt. Við skiptum skreytingunni út á þriggja mánaða fresti í takt við árstíðirnar, svo rýmið fær reglulega nýtt yfirbragð.

Stallurinn hjá MAÍ með gulri skreytinguStallurinn hjá MAÍ með fjólublárri skreytingu
Skreyting hjá My LetraSkreyting í versluninni hjá My Letra

Það sem eigandinn sér ekki lengur

Þú gengur framhjá rýminu þínu á hverjum degi. Viðskiptavinurinn sér það í fyrsta sinn.

Þegar þú sérð sama rýmið á hverjum degi hættirðu smám saman að taka eftir því. Sama hornið, sama borðið, sömu veggirnir. Fólk sem kemur inn í fyrsta sinn sér rýmið hins vegar með ferskum augum. Skreyting sem er hönnuð fyrir rýmið og breytist með árstíðunum gefur auganu eitthvað nýtt án þess að nokkur hjá þér þurfi að vökva, klippa eða muna eftir henni.

Svona virkar það

  1. Við komum í heimsókn

    Heimsóknin er frí og tekur um hálftíma. Við mælum rýmið, skoðum ljósið, litina og húsgögnin og spyrjum hvað þú vilt að fólk sjái þegar það kemur inn.

  2. Þú færð tillögu

    Þú færð tillögu að blómum, vasa og stærð, allt valið með rýmið og vörumerkið í huga.

  3. Við setjum upp

    Við mætum með skreytinguna og stillum henni upp. Uppsetning er innifalin og þú þarft ekki að gera neitt.

  4. Ný skreyting á þriggja mánaða fresti

    Við komum með nýja skreytingu í takt við árstíðina, tökum þá gömlu með okkur og skiljum ekkert eftir. Rýmið breytist með árstíðinni án þess að þú þurfir að gera neitt.

Verð

Veldu það sem hentar þínu rými

Þú velur stærðina sem hentar rýminu. Allt annað er innifalið.

Innifalið í öllum áskriftum

  • Frí ráðgjöf og hönnun fyrir þitt rými
  • Afhending og uppsetning
  • Ný skreyting á þriggja mánaða fresti
  • Engin binding, 14 daga uppsagnarfrestur

Spurningar

Það sem fyrirtæki spyrja að

Já, við hverja endurnýjun. Margir byrja með lítilli skreytingu og stækka hana þegar viðbrögðin fara að koma.

Já. Segðu okkur með tveggja vikna fyrirvara og áskriftin fer á hlé. Þú borgar ekki fyrir þá mánuði sem staðurinn er lokaður.

Það er yfirleitt fyrsta spurningin okkar. Sendu okkur litakóða, eða bara merkið, og við vinnum út frá því.

Einn reikningur á fyrirtækið í hverjum mánuði. Ekkert uppsetningargjald og engin binding.

Fyrsta vikan er frí. Passar hún ekki, þá komum við og tökum hana, engar spurningar. Það er líka einfalt að skipta um vasa eða liti eftir fyrstu viku.

Já, og það er oftast einfaldara. Við skoðum staðina í einni heimsókn og samræmum útlitið, eða gefum hverjum stað sitt svipmót.

Rauð silkiber í hvítum vasa

Engin áhætta

Fyrsta vikan er frí

Frí heimsókn og tillaga. Fyrsta vikan með skreytingunni er líka frí. Engar spurningar, engin skuldbinding.